Hvað eru til margar slöngutegundir?Alls eru rúmlega 2700 tegundir af slöngum þekktar í heiminum.
Þegar nær dregur miðbaug eykst tegundafjölbreytileikinn. Í Kanada finnast eingöngu um 24 tegundir og í Evrópu 28 tegundir. Í Flórída í Bandaríkjunum lifa hins vegar tæplega 50 tegundir og í Brasilíu nokkur hundruð. Í Ástralíu er einnig mikið af slöngum, þar hafa fundist um 140 tegundir af landslöngum og 32 tegundir vatnasnáka. Af þessum fjölda slöngutegunda eru aðeins um 375 tegundir eitraðar manninum. |